Sænsku ungu hægridemókratarnir og Þýski Nasisminn

Samfara örri fjölgun innflytjenda í Evrópu, flestir á flótta undan stríðum og hungursneyðum í heimalöndum sínum, hafa vinsældir ýmissa hægriöfgaflokka, e.o. Ungra sænskra Öfgademókrata og einnig á Evrópuþinginu, aukist til mikilla muna.

Hér á Íslandi, áður en Breski herinn hernam landið, voru ýmis samtök sem aðhylltust þjóðernisöfgastefnu Þýskra Nasista, sem þá voru að færast í vöxt í Evrópu og víðar samfara vinsældum hugmyndafræði Kommúnista, e.o. Þjóðfylkingin, Þjóðernissinninn o.fl.

Hægriöfgaöfl í Evrópu nútímans stóla einmitt á það að ungt fólk í dag sé búið að tapa niður allri vitneskju um Helförina (Sem öfgaöflin neita að hafi átt sér stað), gasklefana, S.S. Drápssérsveitir þýskra Nasista, Gestapó, leyniþjónustu Nasista, Hitlersæskuna (Einu leyfðu æskulýðssamtökin á valdatíma Hitlers), svo fátt eitt sé nefnt til sögunnar.

Þróun sem þessa verðum við að stöðva áður en nýr ,,Nasismi", álíka og blómstraði í Þýskalandi Hitlers, nær svipaðri útbreiðslu. 

 


mbl.is Segir yfirlýsingu Guðrúnar ósanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moskur og miðaldir

Í tilefni af umræðunni um byggingu mosku í Reykjavík, þá vil ég lauma að annarri sögulegri staðreynd til nánari samanburðar:

Á V-Evrópskum miðöldum, fyrir innan við einu árþúsundi giltu ströng kirkjulög, ekki bara um þjófnaði og morð, heldur líka mannlega hætti og hvernig ætti að trúa á Guð. Svo ekki sé minnst á kúgun aðalsins á alþýðunni, hins svokallaða lénsskipulags miðalda.

Þannig að ef við lítum til boða, banna og laga Íslamstrúar í Arabalöndunum, þá vorum við V-Evrópubúar hvergi nærri betri við alþýðuna á miðöldum í okkar löndum.


mbl.is Leitað verður skýringa og sökudólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍBV 2014 og FH 2004

Svona var stemningin í Eyjum þegar ÍBV landaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í handknattleik í Olís-deild karla: 

http://www.mbl.is/frettir/sjonvarp/92641/

En einhvern veginn svona var stemningin 2004 þegar ,,handboltafélagið" FH landaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í Meistaraflokki karla í knattspyrnu: 

http://www.fhingar.net/web/fhtube/video/51


Höfundur

Jóhann Ingi Kristinsson
Jóhann Ingi Kristinsson
Á bloggsíðu þessari ætla ég að skoða mál málanna út frá sögulegum atburðum í fortíð.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband