29.5.2014 | 22:29
Sænsku ungu hægridemókratarnir og Þýski Nasisminn
Samfara örri fjölgun innflytjenda í Evrópu, flestir á flótta undan stríðum og hungursneyðum í heimalöndum sínum, hafa vinsældir ýmissa hægriöfgaflokka, e.o. Ungra sænskra Öfgademókrata og einnig á Evrópuþinginu, aukist til mikilla muna.
Hér á Íslandi, áður en Breski herinn hernam landið, voru ýmis samtök sem aðhylltust þjóðernisöfgastefnu Þýskra Nasista, sem þá voru að færast í vöxt í Evrópu og víðar samfara vinsældum hugmyndafræði Kommúnista, e.o. Þjóðfylkingin, Þjóðernissinninn o.fl.
Hægriöfgaöfl í Evrópu nútímans stóla einmitt á það að ungt fólk í dag sé búið að tapa niður allri vitneskju um Helförina (Sem öfgaöflin neita að hafi átt sér stað), gasklefana, S.S. Drápssérsveitir þýskra Nasista, Gestapó, leyniþjónustu Nasista, Hitlersæskuna (Einu leyfðu æskulýðssamtökin á valdatíma Hitlers), svo fátt eitt sé nefnt til sögunnar.
Þróun sem þessa verðum við að stöðva áður en nýr ,,Nasismi", álíka og blómstraði í Þýskalandi Hitlers, nær svipaðri útbreiðslu.
Segir yfirlýsingu Guðrúnar ósanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2014 | 23:43
Moskur og miðaldir
Í tilefni af umræðunni um byggingu mosku í Reykjavík, þá vil ég lauma að annarri sögulegri staðreynd til nánari samanburðar:
Á V-Evrópskum miðöldum, fyrir innan við einu árþúsundi giltu ströng kirkjulög, ekki bara um þjófnaði og morð, heldur líka mannlega hætti og hvernig ætti að trúa á Guð. Svo ekki sé minnst á kúgun aðalsins á alþýðunni, hins svokallaða lénsskipulags miðalda.
Þannig að ef við lítum til boða, banna og laga Íslamstrúar í Arabalöndunum, þá vorum við V-Evrópubúar hvergi nærri betri við alþýðuna á miðöldum í okkar löndum.
Leitað verður skýringa og sökudólga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.5.2014 | 22:37
ÍBV 2014 og FH 2004
Svona var stemningin í Eyjum þegar ÍBV landaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í handknattleik í Olís-deild karla:
http://www.mbl.is/frettir/sjonvarp/92641/
En einhvern veginn svona var stemningin 2004 þegar ,,handboltafélagið" FH landaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í Meistaraflokki karla í knattspyrnu:
http://www.fhingar.net/web/fhtube/video/51
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Hefur áhyggjur af notkun eldflauganna
- Herra Volvo er genginn
- Sakar dómstólinn um gyðingahatur
- Merkel segir Trump heillaðan af einræðisherrum
- Hótar Bretum og Bandaríkjamönnum
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
- Mun borða nærri 900 milljóna króna banana