Færsluflokkur: Menntun og skóli
29.5.2014 | 22:29
Sænsku ungu hægridemókratarnir og Þýski Nasisminn
Samfara örri fjölgun innflytjenda í Evrópu, flestir á flótta undan stríðum og hungursneyðum í heimalöndum sínum, hafa vinsældir ýmissa hægriöfgaflokka, e.o. Ungra sænskra Öfgademókrata og einnig á Evrópuþinginu, aukist til mikilla muna.
Hér á Íslandi, áður en Breski herinn hernam landið, voru ýmis samtök sem aðhylltust þjóðernisöfgastefnu Þýskra Nasista, sem þá voru að færast í vöxt í Evrópu og víðar samfara vinsældum hugmyndafræði Kommúnista, e.o. Þjóðfylkingin, Þjóðernissinninn o.fl.
Hægriöfgaöfl í Evrópu nútímans stóla einmitt á það að ungt fólk í dag sé búið að tapa niður allri vitneskju um Helförina (Sem öfgaöflin neita að hafi átt sér stað), gasklefana, S.S. Drápssérsveitir þýskra Nasista, Gestapó, leyniþjónustu Nasista, Hitlersæskuna (Einu leyfðu æskulýðssamtökin á valdatíma Hitlers), svo fátt eitt sé nefnt til sögunnar.
Þróun sem þessa verðum við að stöðva áður en nýr ,,Nasismi", álíka og blómstraði í Þýskalandi Hitlers, nær svipaðri útbreiðslu.
Segir yfirlýsingu Guðrúnar ósanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar